Lokað vegna viðhalds til og með 14 janúar.

Notaðu afsláttarkóðan

LYST

Skoða vefverslun

Views Navigation

Event Views Navigation

Í dag

Snorri Helgason – Tónleikar

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason kemur fram á LYST í Lystigarðinum á Akureyri laugardagskvöldið 9. nóvember 2024. Snorri á að baki langan tónlistarferil, fyrst með hljómsveitinni Sprengjuhöllinni og svo  sem sólótónlistarmaður sem hefur gefið út 6 plötur og unnið að ýmsum verkefnum í leikhúsi og kvikmyndum.  Snorri sendi nýverið frá sér lagið Aron sem sat á toppi […]

3.500,0kr.

Fyndinn Frambjóðandi

Oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi býður fólki á uppistand á LYST í Lystigarðinum á Akureyri fimmtudagskvöldið 14.nóvember kl. 20:00.   Frítt inn

BORG | Jólabjór & matur

Jólabjór & Matur með Borg Brugghús 🎅🍻 LYST býður upp á einstakt jólakvöld með Borg Brugghúsi þar sem jólabjórarnir þeirra verða paraðir við rétti frá okkur.  Bruggarar frá BORG mæta og kynna bjórana 5 bjórar - 5 réttir -  Bara gaman Jólabjór & Matur er fullkomin blanda fyrir þá sem elska góðan bjór, frábæran mat […]

Beaujolais Nouveau dagurinn á LYST

Beaujolais Nouveau dagur á Akureyri Hefur þú heyrt um Beaujolais Nouveau? Þetta er létt og ferskt rauðvín sem kemur beint frá Beaujolais-héraðinu í Frakklandi. Beaujolais Nouveau dagurinn er haldinn hátíðlegur á þriðja fimmtudegi nóvember ár hvert, þegar nýja árgerðin er kynnt fyrir heiminum. Vínið sjálft er ótrúlega einstakt – það er tínt, gerjað og komið […]

VetrarhlaupaSERÍA LYST og UFA | #2

Vertu með í VetrarhlaupaSERÍU LYST með UFA! Langar þig að halda þér í formi í vetur og njóta þess að hlaupa með skemmtilegum hópi? Þá er VetrarhlaupaSERÍA LYST fullkomið tækifæri fyrir þig! Hlaupin henta öllum, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn. Allir hlauparar byrja og enda á  LYST í Lystigarðinum, þar sem heitt […]

Jólatónleikar Lúðrasveitar Akureyrar

Jólatónleikar með Lúðrasveit Akureyrar á LYST! Sunnudaginn 1. desember kl. 14:00 verður sannkölluð jólastemning á LYST þegar Lúðrasveit Akureyrar kemur í heimsókn og spilar hátíðlega jólatónlist. Það verður stuð og stemning, fullkomið til að komast í jólaskapið! Viðburðurinn er frábær fyrir fjölskyldur og vini til að njóta tónlistar saman, og á meðan getur þú gripið […]

Jólatónar á LYST

Söngkonurnar Lydía Rós, Rósa María og Sigrún Björg bjóða til notalegrar kvöldstundar á hinu töfrandi fallega kaffihúsi Lyst í Lystigarðinum föstudagskvöldið 13. desember kl 20:00. Þær munu þar ásamt meðleikurum flytja hugljúfa jólatónlist og gefa tónleikagestum tækifæri til að finna hinn einlæga og hlýja anda jólanna. Á tónleikunum verða jafnframt frumfluttir nýjir íslenskir textar við […]

4.500,0kr.

Jólatónleikar kvennakórs Akureyrar

Kvennakór Akureyrar hjálpar þér að komast í jólaskap. Við ætlum að syngja nokkur jólalög í Lyst Lystigarðinum. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Enginn aðgangseyrir er að huggulegheitunum.

Kvöldstund með Villa, Kidda og Hjalla

Leikararnir, vinirnir og Garparnir Hjalti Rúnar Jónsson, Kristinn Óli Haraldsson og Vilhjálmur B. Bragason blása til tónleika á LYST laugardagskvöldið 21.12.24. Þar ætla þeir að flytja frumsamin lög eftir sig og aðra, gantast og grínast, segja sögur, sýna látbragð og spunalistir úr leikhúsinu, auk þess sem þeir eru boðnir og búnir að framkvæma minniháttar lýtaaðgerðir […]

5.500,0kr.

Aðventuupplestur á LYST

Fjórða sunnudag í aðventu, þann 22. desember kl. 17, verður aðventuupplestur á LYST í Lystigarðinum á Akureyri. Fjórir höfundar munu lesa upp úr verkum sínum, þau Hekla Björt Helgadóttir, Jóhannes Árnason, Jónas Reynir Gunnarsson og Karólína Rós Ólafsdóttir. Komið og eigið huggulega kvöldstund Frítt er inn á viðburðinn. Bækur verða til sölu og áritunar að lestri […]