Lokað vegna viðhalds til og með 14 janúar.

Notaðu afsláttarkóðan

LYST

Skoða vefverslun

Um Lystigarðinn

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua.

Lystigarðurinn stofnaður

Lystigarðurinn á Akureyri var opnaður formlega árið 1912. Nokkrar húsmæður stofnuðu Lystigarðsfélagið 1910. Í lögum félagsins, 2. grein, segir:

 “Tilgangur félagsins er að koma upp garði í Akureyrarbæ, bænum til prýði og almenningi til skemmtunar. Garðurinn sé skreyttur trjám og blómum og leikvellir og lystihús séu þar almenningi til afnota svo fljótt sem því verður við komið”

Þegar árið 1909 sóttu þær um land og fengu úthlutað um 1 ha landspildu úr landi Stóra Eyrarlands. Anna Catrine Schiöth skipulagði og teiknaði þennan elsta hluta garðsins og vann hún síðan með hjálp annarra kvenna að vexti og viðhaldi garðsins fyrstu árin. Tengdadóttir hennar frú Margrethe Schiöth tók síðar við stjórninni og fór með hana meira og minna síðustu 30 árin sem félagið starfaði. Lystigarðurinn er fyrsti almenningsgarður landsins og var rekinn af Lystigarðsfélaginu allt til ársins 1953.

Þá var félagið lagt niður og Akureyrarbær tekur formlega við rekstrinum og hefur rekið hann síðan.

Garðurinn hefur verið stækkaður þrisvar sinnum síðan þá og er nú um 3.6 ha í 40-50 m hæð. Helstu markmið með rekstrinum eru fjölmörg. Eitt mikilvægasta hlutverkið er að finna með prófunum, fallegar, harðgerar tegundir fjölæringa, trjáa og runna. Þar að auki er hann notaður til afþreyingar og nýtist almenningi til fróðleiks og skemmtunar.

Nánar á síðu Lystigarðsins