Vertu með í VetrarhlaupaSERÍU LYST með UFA! Langar þig að halda þér í formi í vetur og njóta þess að hlaupa með skemmtilegum hópi? Þá er VetrarhlaupaSERÍA LYST fullkomið tækifæri fyrir þig! Hlaupin henta öllum, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn. Allir hlauparar byrja og enda á LYST í Lystigarðinum, þar sem heitt […]
Tónlistarfólkið Guðrún Arngríms, Ívar Helga og Maja Eir bjóða til kósý jólakvölds á LYST föstudagskvöldið 29.nóvember nk. kl. 20.30. Þar bjóða þau upp á notalega gamaldags jólastemningu í formi jólatónlistar Frank Sinatra, Bing Crosby, Ella Fitzgerald o.fl.
Jólatónleikar með Lúðrasveit Akureyrar á LYST! Sunnudaginn 1. desember kl. 14:00 verður sannkölluð jólastemning á LYST þegar Lúðrasveit Akureyrar kemur í heimsókn og spilar hátíðlega jólatónlist. Það verður stuð og stemning, fullkomið til að komast í jólaskapið! Viðburðurinn er frábær fyrir fjölskyldur og vini til að njóta tónlistar saman, og á meðan getur þú gripið […]
Söngkonurnar Lydía Rós, Rósa María og Sigrún Björg bjóða til notalegrar kvöldstundar á hinu töfrandi fallega kaffihúsi Lyst í Lystigarðinum föstudagskvöldið 13. desember kl 20:00. Þær munu þar ásamt meðleikurum flytja hugljúfa jólatónlist og gefa tónleikagestum tækifæri til að finna hinn einlæga og hlýja anda jólanna. Á tónleikunum verða jafnframt frumfluttir nýjir íslenskir textar við […]
Kvennakór Akureyrar hjálpar þér að komast í jólaskap. Við ætlum að syngja nokkur jólalög í Lyst Lystigarðinum. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Enginn aðgangseyrir er að huggulegheitunum.
Kristján Edelstein, Stefán Ingólfsson og Hjörleifur Jónsson þræða óhefðbundnar leiðir í gegnum þekkta jólasálma. Tónleikar hefjast kl. 21:00 Miðaverð 3.500 kr
Leikararnir, vinirnir og Garparnir Hjalti Rúnar Jónsson, Kristinn Óli Haraldsson og Vilhjálmur B. Bragason blása til tónleika á LYST laugardagskvöldið 21.12.24. Þar ætla þeir að flytja frumsamin lög eftir sig og aðra, gantast og grínast, segja sögur, sýna látbragð og spunalistir úr leikhúsinu, auk þess sem þeir eru boðnir og búnir að framkvæma minniháttar lýtaaðgerðir […]
Fjórða sunnudag í aðventu, þann 22. desember kl. 17, verður aðventuupplestur á LYST í Lystigarðinum á Akureyri. Fjórir höfundar munu lesa upp úr verkum sínum, þau Hekla Björt Helgadóttir, Jóhannes Árnason, Jónas Reynir Gunnarsson og Karólína Rós Ólafsdóttir. Komið og eigið huggulega kvöldstund Frítt er inn á viðburðinn. Bækur verða til sölu og áritunar að lestri […]