Íslensk tangótónlist á LYST
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir söngkona og Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harmónikkuleikari gera íslenskum tangó skil í tali og tónum á stórskemmtilegum tónleikum sem voru fyrst fluttir í Hörpu síðasta haust. Blómaskeið íslenskrar tangótónlistar var um miðbik síðustu aldar. Margir þekktir lagahöfundar sömdu falleg tangólög og má í þeim hópi nefna til dæmis Oddgeir Kristjánsson, Bjarna Böðvarsson, Friðrik […]
Teitur Magnússon
Teitur Magnússon snýr aftur norður og telur í þrusu þétt prógram frumsamdra slagara af ferlinum auk vel valinna tökulaga. Eftir að hafa gefið út reggíbræðing með Ojba Rasta vakti Teitur fyrst athygli undir eigin nafni árið 2014 með sólóplötunni 27. Platan innihélt skynvillu-skotið dægurlagapopp og var fylgt eftir með plötunni Orna árið 2018 við góðan […]
Katrín Mist syngur uppáhalds lögin sín
PUB Quiz með Villa Vandræðaskáld – Í boði WISE & ÞEKKINGAR
Gettu betur spurningahöfundur, dómari, leikari, grínisti og tónlistamaður. Villi Vandræðaskáld kemur aftur með Pub quiz! Alltaf vinsæll Best að bóka borð! Og skrá sig á biðlistann ef það er uppbókað, það detta alltaf einhverjir út á síðustu stundu.. Í boði WISE & ÞEKKINGAR Bóka borð
Dagur Harmonikunnar
Hugljúf stemming á LYST - LystigarðinumHarmonikudaginn 4. maí Ljúfir harmonikutónar munu óma áLYST - Lystigarðinum í tilefni afalþjóðlegum degi harmonikunnarFrönsk stemmning,kvikmyndaballöður ogrómantísk ástarljóðFlytjendur á öllum aldri flytjafjölbreytta tónlist Laugardagur - 4. maí - Milli 14:30 og 16:00 - LYST - Lystigarðurinn - Frítt inn
Brynjólfur og Soffía
Þann 17. maí kl. 20:00 ætla þau Soffía Meldal og Brynjólfur Skúlason, nemendur Tónlistarskólans á Akureyri, að efna til tónleika á LYST. Efnisskrá er fjölbreytt og eru öll velkomin sem vilja koma og njóta. Þeim til halds og trausts verður kennaraband Tónlistarskólans skipað svona:Hallgrímur Jónas Ómarsson - gítarHjörleifur Örn Jónsson - trommurRisto Laur - píanóStefán […]
Ingvi Quartet
Þekkt og þægileg jazz og blús lög ásamt frumsaminni tónlist.Lög sem listafólk á borð við Frank Sinatra, Natalie Cole, Etta James, Ella Fitzgerald, Bill Evans, Joe Cocker, John Coltrane og fleiri hafa gert vinsæl.Kjartan Valdemarsson- píanóMichael Weaver-sax, tenor og flautaPétur Ingólfsson-kontrabassiIngvi Rafn Ingvason-trommur & söngurGestasöngkona-Lydía Rós Björnsdóttir Waage.Miðasala á Lyst.is
Hugljúfir vortónar
Það eru þær Hafdís Inga, Helga Viðars, Lydía Rós, Soffía Meldal & Sigrún Björg ásamt hljómsveit sem flytja gestum hugljúfa vortóna á Lyst í Lystigarðinum laugardagskvöldið 25. maí. Tónleikarnir eru hluti af útskrift þeirra úr Complete Vocal Technique námi við Tónlistarskólann á Akureyri. Hljómsveit skipa: Risto Laur, Tómas Leó Halldórsson og Bjarki Símónarson. Verið hjartanlega […]
Forhlustunarpartý Bigga Maus
Forhlustunarpartý Bigga Maus Birgir Örn Steinarsson, sem starfar undir listamanna nafninu Biggi Maus, hefur ákveðið að fagna útgáfu væntanlegrar breiðskífu sinnar 'Litli dauði/Stóri hvellur' með því að bjóða fólki í for-hlustunarpartý á LYST. Það verður haldið þann 30. maí, eða tæpri viku fyrir útgáfu sjálfrar plötunnar. Breiðskífan kemur svo út þann 5. júní næstkomandi á […]
Pub Quiz með Villa Vandræðaskáld – Í boði Kalda
Síðasta pub quiz fyrir sumarið! verður forsetaþema? verður sumar þema? það verður allavega gaman Gettu betur dómarinn og spurningahöfundur heldur áfram með pub quiz in sín hjá okkur á LYST Best að bóka borð - komust færri að en vildu síðast! Þessi viðburður er í boði KALDA Bóka hér
Tríó Kristjáns Edelsteins á LYST
Tríó Kristjáns Edelsteins mun halda tónleika á LYST í Lystigarðinum á Akureyri þann 1. júní næstkomandi. Tríóið mun þar spila frumsamda tónlist af komandi plötu. Bandið skipa Kristján Edelstein, Stefán Ingólfsson og Halldór G Hauksson. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 kvöldið 1. júní.
Kokteil námkeið með Og Natura
Og Natura kemur norður og heldur kokteilnámskeið!Það verður smakkað nokkrar tegundir af gini og rommi, fullt af fræðslu og svo gera allir nokkra kokteila. Hentar öllum, bæði fagfólki sem vill læra meira og áhugamönnum sem vilja smakka meira. 20 ára og eldri Gjafaprís!6.500 kr á mann takmarkaður sætafjöldi, svo bókaðu strax!