Ómar ómar
Söngkvartettinn Ómar blæs til tónleika á LYST í Lystigarðinum laugardaginn 9. mars kl. 20.30. Á efnisskrá er fjölbreytt og grípandi íslensk tónlist. Kvartettinn skipa Helga Kolbeinsdóttir, Harpa Björk Birgisdóttir, Jón Þorsteinn Reynisson og Jón Pálmi Óskarsson. Hefur þú lyst á list á LYST?
Gugusar & KUSK + Óviti
Við lofum fjöri! Húsið opnar kl 19:30. Tónleikarnir byrja 20:30 Miðasala á Tix.is --------------------- Um Gugusar: Gugusar pródúserar og semur öll sín lög ein síns liðs. Hún gaf út sína fyrstu breiðskífu Listen To This Twice þegar hún var einungis 15 ára gömul. Önnur breiðskífa Gugusar kom út árið 2021. Báðar breiðskífur voru tilnefndar í […]
Birkir Blær – Páskatónleikar
Birkir Blær heldur tónleika á LYST laugardaginn 30. mars kl 20:30. Hann mun flytja blöndu af nýju og gömlu efni ásamt vel völdum ábreiðum. Hann mun einnig syngja glænýtt lag sem kemur út daginn fyrir tónleikana! Miðaverð: 3500 kr Um Birki: Birkir Blær er 24 ára tónlistarmaður frá Akureyri en hann hefur verið búsettur í […]
Pub Quiz með Villa Vandræðaskáld – Í boði Kalda
Gettu betur dómarinn og spurningahöfundur heldur áfram með pub quiz in sín hjá okkur á LYST Best að bóka borð - komust færri að en vildu síðast! Þessi viðburður er í boði KALDA Bóka hér
Ritlistakvöld með Vigdísi Hafliða
Fyrra ritlistakvöld Ungskálda verður miðvikudagskvöldið 10. apríl á LYST í Lystigarðinum frá kl. 20-22. Að þessu sinni er leiðbeinandinn Vigdís Hafliðadóttir en hún hefur komið víða við í lista- og grínheiminum. Vigdís vann keppnina Fyndnasti háskólaneminn árið 2020 og síðan þá hefur leiðin legið upp á við. Hún er söngkonan í hljómsveitinni FLOTT þar sem […]
Íslensk tangótónlist á LYST
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir söngkona og Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harmónikkuleikari gera íslenskum tangó skil í tali og tónum á stórskemmtilegum tónleikum sem voru fyrst fluttir í Hörpu síðasta haust. Blómaskeið íslenskrar tangótónlistar var um miðbik síðustu aldar. Margir þekktir lagahöfundar sömdu falleg tangólög og má í þeim hópi nefna til dæmis Oddgeir Kristjánsson, Bjarna Böðvarsson, Friðrik […]
Teitur Magnússon
Teitur Magnússon snýr aftur norður og telur í þrusu þétt prógram frumsamdra slagara af ferlinum auk vel valinna tökulaga. Eftir að hafa gefið út reggíbræðing með Ojba Rasta vakti Teitur fyrst athygli undir eigin nafni árið 2014 með sólóplötunni 27. Platan innihélt skynvillu-skotið dægurlagapopp og var fylgt eftir með plötunni Orna árið 2018 við góðan […]
Katrín Mist syngur uppáhalds lögin sín
PUB Quiz með Villa Vandræðaskáld – Í boði WISE & ÞEKKINGAR
Gettu betur spurningahöfundur, dómari, leikari, grínisti og tónlistamaður. Villi Vandræðaskáld kemur aftur með Pub quiz! Alltaf vinsæll Best að bóka borð! Og skrá sig á biðlistann ef það er uppbókað, það detta alltaf einhverjir út á síðustu stundu.. Í boði WISE & ÞEKKINGAR Bóka borð
Dagur Harmonikunnar
Hugljúf stemming á LYST - LystigarðinumHarmonikudaginn 4. maí Ljúfir harmonikutónar munu óma áLYST - Lystigarðinum í tilefni afalþjóðlegum degi harmonikunnarFrönsk stemmning,kvikmyndaballöður ogrómantísk ástarljóðFlytjendur á öllum aldri flytjafjölbreytta tónlist Laugardagur - 4. maí - Milli 14:30 og 16:00 - LYST - Lystigarðurinn - Frítt inn
Brynjólfur og Soffía
Þann 17. maí kl. 20:00 ætla þau Soffía Meldal og Brynjólfur Skúlason, nemendur Tónlistarskólans á Akureyri, að efna til tónleika á LYST. Efnisskrá er fjölbreytt og eru öll velkomin sem vilja koma og njóta. Þeim til halds og trausts verður kennaraband Tónlistarskólans skipað svona:Hallgrímur Jónas Ómarsson - gítarHjörleifur Örn Jónsson - trommurRisto Laur - píanóStefán […]
Ingvi Quartet
Þekkt og þægileg jazz og blús lög ásamt frumsaminni tónlist.Lög sem listafólk á borð við Frank Sinatra, Natalie Cole, Etta James, Ella Fitzgerald, Bill Evans, Joe Cocker, John Coltrane og fleiri hafa gert vinsæl.Kjartan Valdemarsson- píanóMichael Weaver-sax, tenor og flautaPétur Ingólfsson-kontrabassiIngvi Rafn Ingvason-trommur & söngurGestasöngkona-Lydía Rós Björnsdóttir Waage.Miðasala á Lyst.is