Lokað vegna viðhalds til og með 14 janúar.

Notaðu afsláttarkóðan

LYST

Skoða vefverslun
Loading Events

« Allir viðburðir

  • This event has passed.

Óhefluð jól

21. desember, 2025 @ 20:30 - 22:30
4.990,0kr.

Jólatónleikar Garpa á Lyst í fyrra voru jólatónleikarnir sem fólk vissi ekki að það þyrfti. Þá héldu leikararnir og vinirnir Hjalti Rúnar Jónsson, Kristinn Óli Haraldsson og Vilhjálmur B. Bragason óhefluðustu jólatónleika í manna minnum ásamt gítargoðinu Daníel Andra Eggertssyni. Nú á að endurtaka leikinn en þar sem Kristinn Óli er innblásin af heilögum anda og fastur í barneignum í borginni þá verður sérstakur heiðursgestur á tónleikunum engin önnur en Hólmfríður Hafliðadóttir, sem ætlar m.a. að frumflytja sína fyrstu lagasmíð, svo um sögulegt kvöld er að ræða í ýmsum skilningi. Eins og í fyrra er ætlunin hjá þessu fríða föruneyti að flytja frumsamin lög eftir sig og aðra, gantast og grínast, segja sögur, sýna látbragð og spunalistir úr leikhúsinu, auk þess sem þau eru boðin og búin að framkvæma minniháttar lýtaaðgerðir á tónleikagestum, enda meðvituð um mikilvægi þess að líta vel út um jólin. Kvöldstund sem slær á kvíða og stress fyrir jólunum, falleg, frumleg og fyndin.

Miðar

The numbers below include tickets for this event already in your cart. Clicking "Get Tickets" will allow you to edit any existing attendee information as well as change ticket quantities.
Miðar are no longer available

Details

  • Date: 21. desember, 2025
  • Time:
    20:30 - 22:30
  • Cost: 4.990,0kr.