
Teitur Magnússon – Hátíðartónleikar

Teitur Magnússon snýr aftur á LYST og ætlar að eiga með okkur notalega kvöldstund í Lystigarðinum laugardaginn 19. desember.
Teitur hefur fyrir löngu skapað sér einstakan sess í íslensku tónlistarlífi með sínum sérstaka hljóðheimi, fallegum melódíum og ljóðrænum textum. Tónlistin ferðast áreynslulaust á milli þjóðlagatónlistar, popps og seiðandi suðrænna takta.
Í haust sendi Teitur frá sér sína fjórðu sólóplötu, Ask, sem bætist í hóp hinna rómuðu platna 27, Orna og 33. Þar heldur hann áfram að þróa sinn einstaka tónheim.
Nú þegar jólin nálgast ætlum við að koma saman í hlýjuna á LYST, njóta góðrar tónlistar og eiga fallega stund í skammdeginu. Teitur flytur úrval laga úr sínum eigin lagabanka og hver veit nema eitt og eitt jólalag fái að fljóta með í hans eigin búningi.
Gerið kvöldið að heilli upplifun!
Við verðum að sjálfsögðu með opið á Dinner á LYST fyrir tónleikana. Tilvalið að byrja kvöldið á þriggja rétta kvöldverði og góðu víni áður en Teitur tekur við. Við mælum með að bóka borð tímanlega.
Smá jól, smá töfrar, góður matur og fullt af fallegri tónlist.
