
Dinner á
LYST
Dinner á LYST er kvöldverðarstaðurinn okkar inni í LYST í Lystigarðinum.
Við erum með lítinn matseðil sem breytist reglulega eftir árstíð, hráefni og stemmingu í eldhúsinu. Réttirnir eru einfaldlega settir upp, með áherslu á gott hráefni, góða matreiðslu og afslappaða upplifun.
Þú getur komið í þrjá rétti, deilt nokkrum diskum, fengið þér glas af víni og einn rétt — eða setið lengur yfir góðri flösku.
Vínin skipa stóran sess hjá okkur, með áherslu á náttúruvín og flöskur sem okkur finnst skemmtilegt að opna.
Dinner á LYST er opið fimmtudaga til laugardaga.
Hátíðarmatseðillinn á Dinner á LYST 
Í nóvember og desember bjóðum við upp á 3 rétta hátíðarmatseðil fyrir 10.000 kr.
Fullkomið fyrir jólakvöld með vinunum, vinnuhópnum eða fjölskyldunni – hvort sem þið eruð fá eða mörg.
Borðið góðan mat, drekkið vel og njótið kvöldsins með okkur á dinner á LYST. 
Hópabókanir á LYST@LYSTak.is
Hópabókanir á LYST@LYSTak.is




