Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Í dag
  • Jólatónleikar Lúðrasveitar Akureyrar

    Jólatónleikar með Lúðrasveit Akureyrar á LYST! Sunnudaginn 7. desember kl. 16:00 verður sannkölluð jólastemning á LYST þegar Lúðrasveit Akureyrar kemur í heimsókn og spilar hátíðlega jólatónlist. Það verður stuð og stemning, fullkomið til að komast í jólaskapið! Viðburðurinn er frábær fyrir fjölskyldur og vini til að njóta tónlistar saman, og á meðan getur þú gripið […]

  • Elín Hall – Hátíðartónleikar

    Hátíðartónleikar – Elín Hall, LYST á Akureyri Tónlistarkonan Elín Hall sameinar hlýju hátíðarinnar og melankólíu vetrarins á sérstökum hátíðartónleikum á LYST á Akureyri. Með sínum einkennandi draumkennda hljóðheim og tilfinningaríka flutningi skapar hún töfrandi jólastemningu fyrir Norðlendinga þar sem hún tekur í bland eigin lög og klassísk jólalög í nýjum búningi. Elín Hall hefur skapað […]

    4.900,0kr.
  • Elín Hall – Hátíðartónleikar – AUKATÓNLEIKAR

    AUKATÓNLEIKAR ! 13. desember Hátíðartónleikar – Elín Hall, LYST á Akureyri Tónlistarkonan Elín Hall sameinar hlýju hátíðarinnar og melankólíu vetrarins á sérstökum hátíðartónleikum á LYST á Akureyri. Með sínum einkennandi draumkennda hljóðheim og tilfinningaríka flutningi skapar hún töfrandi jólastemningu fyrir Norðlendinga þar sem hún tekur í bland eigin lög og klassísk jólalög í nýjum búningi. […]

    4.900,0kr.
  • Jólastuð Orkusölunnar

    JólaStuð í Lystigarðinum ⚡️🎄 Komdu og vertu með okkur í STUÐI í hjarta Akureyrar. JólaStuð í Lystigarðinum er fjölskylduvænn og hátíðlegur viðburður með jólabasar, tónleikum með Páli Óskari og skemmtilegum heimsóknum 🎄 Jólabasar Dunda kl. 16:00-20:00 🎄 Lúðrasveit Akureyrar kl 17:00 - 17:30 🎄 Páll Óskar kl.17:30 - 18:10, eftir tónleikana verður hægt að fá […]

  • Jólatónleikar kvennakórs Akureyrar 2025

    Kvennakór Akureyrar hjálpar þér að komast í jólaskap. Við ætlum að syngja nokkur jólalög í Lyst Lystigarðinum. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Enginn aðgangseyrir er að huggulegheitunum. #menningarsjoður

  • Jólatónleikar Kristján Edelstein

    🎄 JÓLATÓNLEIKAR – KRISTJÁN EDELSTEIN TRÍÓLYST í Lystigarðinum – 20. desember kl. 21:00 Við bjóðum upp á notalega og hlýja jólastemningu í Lystigarðinum þegar Kristján Edelstein, Halldór Gunnlaugur Hauksson og Stefán Ingólfsson stíga á svið.Tríóið flytur blöndu af jazzskreyttum jólalögum, eigin útsetningum og sígildum perlum – allt í anda jólanna og LYST. Komin hefð er […]

    4.500,0kr.
  • Óhefluð jól

    Jólatónleikar Garpa á Lyst í fyrra voru jólatónleikarnir sem fólk vissi ekki að það þyrfti. Þá héldu leikararnir og vinirnir Hjalti Rúnar Jónsson, Kristinn Óli Haraldsson og Vilhjálmur B. Bragason óhefluðustu jólatónleika í manna minnum ásamt gítargoðinu Daníel Andra Eggertssyni. Nú á að endurtaka leikinn en þar sem Kristinn Óli er innblásin af heilögum anda […]

    4.990,0kr.
  • Þorláksmessukósy með Svavari Knút í Eymundsson

    Svavar Knútur mun syngja inn jólin á Kaffi LYST í Pennanum Eymundsson með lifandi tónlist og notalegu stemmningu, og það er frítt inn fyrir alla gesti. Heitt súkkulaði verður á tilboði til að gera kvöldið enn notalegra. Þorláksmessa er bara best. Ljósin, fólkið, stemmningin. Allt verður einhvern veginn aðeins notalegra þennan 23. desember. Það hefur […]

  • Þorláksmessutónleikar Hrefnu Logadóttir á LYST í Lystigarðinum

    Hrefna Logadóttir verður með fallega Þorláksmessutónleika á LYST í Lystigarðinum – og þetta verður alveg einstaklega notalegt kvöld. Jólatónar í hlýlegu rýminu hjá okkur, jólastemning í garðinum allt í kring og rólegt andartak áður en jólin byrja. Það er frítt inn og á barnum bjóðum við upp á vín, bjór og jólaglögg til að halda […]

  • 🏃‍♀️❄️ Vetrarhlaupasería LYST með UFA! # 3❄️🏃‍♂️

    Komdu með í vetrarhlaup þar sem stemmingin er í fyrirrúmi – þetta er fyrir alla, hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin eða vanur hlaupari! Við hittumst síðasta miðvikudag í mánuði kl. 17:30 við LYST í Lystigarðinum og tökum saman hlaup um Akureyri Eftir hlaupið bíður þín heitt súkkulaði, fiskisúpa & brauð í boði […]

  • Pub Quiz | Villi Vandræðaskáld | 30. janúar – Í boði KALDA

    Það er komið að því aftur! LYST kynnir Pub Quiz með Villa Vandræðaskáld, viðburður sem sló í gegn í fyrra, þá héldum við 5 pub quiz og það var alltaf uppselt – svo það borgar sig að bóka snemma! Fyrsta quiz fer fram 30.janúar kl. 20:30. Við lofum frábærri skemmtun, hressandi stemningu og auðvitað spurningum […]

  • Allsber Pub Quiz á LYST

    ALLSBER – Pub-quiz á LYST 🍷🧠Komdu á Allsber pub-quiz kvöld á LYST í Lystigarðinum þar sem spurningar eru um allt milli himins og jarðarAllsber quizið er fyrir vini, pör, vinnufélaga og alla sem elska góðar spurningar, góða stemningu og gott vín. 🗓 Laugardaginn 21. febrúar🕗 Klukkan 20:00📍 LYST, Lystigarðinum – Akureyri 🎟 Engir hefðbundnir miðarMiðakerfið […]