
- This event has passed.
Allsber Pub Quiz á LYST

ALLSBER – Pub-quiz á LYST 🍷🧠
Komdu á Allsber pub-quiz kvöld á LYST í Lystigarðinum þar sem spurningar eru um allt milli himins og jarðar
Allsber quizið er fyrir vini, pör, vinnufélaga og alla sem elska góðar spurningar, góða stemningu og gott vín.
🗓 Laugardaginn 21. febrúar
🕗 Klukkan 20:00
📍 LYST, Lystigarðinum – Akureyri
🎟 Engir hefðbundnir miðar
Miðakerfið er kannski aðeins skrítið – en lausnin er einföld og miklu betri:
í stað miða kaupir þú bara flösku af víni fyrir þitt lið og höfum gaman
📌 Mælt er með að bóka borð – takmarkað pláss
Hvað er þetta allsber?
Allsber.is er heimili náttúruvína á Íslandi — vefverslun þar sem hægt er að kaupa handgerð gæðavín, og þau bjóða líka upp á vínsmakkanir fyrir fyrirtæki og hópa.
Allir verða klæddir í föt þetta kvöld…..
