Lokað vegna viðhalds til og með 14 janúar.

Notaðu afsláttarkóðan

LYST

Skoða vefverslun

Views Navigation

Event Views Navigation

Í dag

Ingvi Quartet

Þekkt og þægileg jazz og blús lög ásamt frumsaminni tónlist.Lög sem listafólk á borð við Frank Sinatra, Natalie Cole, Etta James, Ella Fitzgerald, Bill Evans, Joe Cocker, John Coltrane og fleiri hafa gert vinsæl.Kjartan Valdemarsson- píanóMichael Weaver-sax, tenor og flautaPétur Ingólfsson-kontrabassiIngvi Rafn Ingvason-trommur & söngurGestasöngkona-Lydía Rós Björnsdóttir Waage.Miðasala á Lyst.is

4.900,0kr.

Hugljúfir vortónar

Það eru þær Hafdís Inga, Helga Viðars, Lydía Rós, Soffía Meldal & Sigrún Björg ásamt hljómsveit sem flytja gestum hugljúfa vortóna á Lyst í Lystigarðinum laugardagskvöldið 25. maí. Tónleikarnir eru hluti af útskrift þeirra úr Complete Vocal Technique námi við Tónlistarskólann á Akureyri. Hljómsveit skipa: Risto Laur, Tómas Leó Halldórsson og Bjarki Símónarson. Verið hjartanlega […]

3.000,0kr.

Forhlustunarpartý Bigga Maus

Forhlustunarpartý Bigga Maus Birgir Örn Steinarsson, sem starfar undir listamanna nafninu Biggi Maus, hefur ákveðið að fagna útgáfu væntanlegrar breiðskífu sinnar 'Litli dauði/Stóri hvellur' með því að bjóða fólki í for-hlustunarpartý á LYST. Það verður haldið þann 30. maí, eða tæpri viku fyrir útgáfu sjálfrar plötunnar. Breiðskífan kemur svo út þann 5. júní næstkomandi á […]

Pub Quiz með Villa Vandræðaskáld – Í boði Kalda

Síðasta pub quiz fyrir sumarið! verður forsetaþema? verður sumar þema? það verður allavega gaman Gettu betur dómarinn og spurningahöfundur heldur áfram með pub quiz in sín hjá okkur á LYST Best að bóka borð - komust færri að en vildu síðast! Þessi viðburður er í boði KALDA   Bóka hér    

Tríó Kristjáns Edelsteins á LYST

Tríó Kristjáns Edelsteins mun halda tónleika á LYST í Lystigarðinum á Akureyri þann 1. júní næstkomandi. Tríóið mun þar spila frumsamda tónlist af komandi plötu. Bandið skipa Kristján Edelstein, Stefán Ingólfsson og Halldór G Hauksson. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 kvöldið 1. júní.

3.500,0kr.

Kokteil námkeið með Og Natura

Og Natura kemur norður og heldur kokteilnámskeið!Það verður smakkað nokkrar tegundir af gini og rommi, fullt af fræðslu og svo gera allir nokkra kokteila. Hentar öllum, bæði fagfólki sem vill læra meira og áhugamönnum sem vilja smakka meira. 20 ára og eldri Gjafaprís!6.500 kr á mann takmarkaður sætafjöldi, svo bókaðu strax!

Og Natura – Kokteil TAKEOVER

Kemstu ekki á Kokteilnámskeiðið með Og Natura? engar áhyggjur Og Natura tekur yfir barinn á föstudeginum og verður með alla sínu bestu kokteila og bjóra LYST sér um veitingar svo það er tilvalið að kíkja í drykk og mat laaaaaaang best að bóka borð!

Útitónleika SERÍA – LÓN

Fyrstu tónleikar í Útitónleika seríunni sumarið 2024!   Hljómsveitin Lón mætir en hana skipa Valdimar Guðmundsson, Ásgeir Aðalsteinsson og Ómar Guðjónsson. LYST heldur tónleikana, og allur ágóði af þeim rennur til Lystigarðsins. Miðasala fer fram á LYST.is og með posa á staðnum. Hægt er að styrkja garðin með miðakaupum hvort sem þið komist á tónleikana […]

3.500,0kr.

Teitur Magnússon

Teitur Magnússon hefur tónleikaferð sína um Norður- og Austurland í Lystigarðinum á Akureyri. Teitur hefur átt góðu gengi að fagna að undanförnu og átt mörg lög á vinsældalistum. Tryggið ykkur miða á þessa einstöku upplifun! Eftir að hafa gefið út reggíbræðing með Ojba Rasta forðum daga vakti Teitur fyrst athygli undir eigin nafni árið 2014 […]

3.500,0kr.

Krummi á LYST

Söng og lagahöfundurinn Krummi Björgvinsson mun koma fram ásamt hljómsveit sinni Krákunum á LYST þann 6.Júlí. Hann mun flumflytja lög af sinni næstkomandi hljómplötu ásamt eldri lögum sem hafa náð miklum vinsældum í útvarpi og trónað á toppi vinsældarlista Rás 2, Bylgjunni svo eitthvað sé nefnt. Miðaverð er aðeins 4990 kr sem hægt er að […]

4.990,0kr.

Sumar & bjórhátíð LYST

Við endurtökum leikinn frá því í fyrra. Íslenskur bjór, næs vibe, góður matur, flottir tónleikar eru þemað í ár. Dagskrá 19. júlí Tilboð á bestu stöðum Akureyrar   20. júlí Tilboð á bestu stöðum Akureyrar 13:00 - 18:00 Brugghús dæla og kynna bjór Grillaðar pizzur Tony’s Paella Churros Bjórsnarl LYST Píludeild Þórs - Stigakeppni 16:00 […]

10.500,0kr.

Útitónleika SERÍA – Una Torfadóttir

Tónleikar númer tvö í Útitónleika seríunni sumarið 2024!   Una Torfadóttir spilar öll sín bestu lög LYST heldur tónleikana, og allur ágóði af þeim rennur til Lystigarðsins. Miðasala fer fram á LYST.is og með posa á staðnum. (Armband á sumar & bjórhátíð LYST jafngildir miða á þennan viðburð) Hægt er að styrkja Lystigarðinn með miðakaupum […]

3.500,0kr.