
🏃♀️❄️ Vetrarhlaupasería LYST með UFA! # 4❄️🏃♂️

Komdu með í vetrarhlaup þar sem stemmingin er í fyrirrúmi – þetta er fyrir alla, hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin eða vanur hlaupari! Við hittumst síðasta miðvikudag í mánuði kl. 17:30 við LYST í Lystigarðinum og tökum saman hlaup um Akureyri
Eftir hlaupið bíður þín heitt súkkulaði, fiskisúpa & brauð í boði ORKUSÖLUNNAR
📅 Næstu dagsetningar
25. febrúar | 25. mars
💰 Þátttökugjald: 1.000 kr.
📍 Við LYST í Lystigarðinum
Styrktaraðilar: Orkusalan ⚡ | BE-KIND | Powerade 💧
Skráning fer fram á staðnum
——–
Mæting í Lystigarðinn við LYST þar sem hlaupið er ræst til suðurs. Hlaupið er suður út úr Lystigarði við SAK, beygt til hægri og hlaupið upp að Þórunnarstræti. Farið er yfir gangbraut á Þórunnarstræti, beygt til vinstri og hlaupið að og upp Mímisbraut að Mýrarvegi. Við Mýrarveg er haldið beint áfram yfir gangbraut og inn á göngustíginn sem liggur að Dalsbraut. Við Dalsbraut er beygt til vinstri og haldið suður að hringtorgi við Bónus. Við hringtorgið er farið yfir gangbrautina, haldið beint áfram og upp á MS-stíginn og hlaupið er alla leið að Rauða kross húsinu. Þar er beygt inn Skógarlundinn og hlaupið að og inn Brálund, að MS-stígnum. Þar er beygt til hægri og hlaupinn er annar svona hringur (MS-stígur að Rauða krossinum, inn Skógarlundinn og að og inn Brálundinn). Þegar komið er í annað sinn að og inn Brálundinn (á MS-stíginn) er beygt til vinstri og sama leið farin til baka. Hlaupið endar við LYST.
