Lokað vegna viðhalds til og með 14 janúar.

Notaðu afsláttarkóðan

LYST

Skoða vefverslun

Loading Events

« Allir viðburðir

  • This event has passed.

Íslensk tangótónlist á LYST

17. apríl @ 20:00 - 21:30

3.500,0kr.
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir söngkona og Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harmónikkuleikari gera íslenskum tangó skil í tali og tónum á stórskemmtilegum tónleikum sem voru fyrst fluttir í Hörpu síðasta haust.
Blómaskeið íslenskrar tangótónlistar var um miðbik síðustu aldar. Margir þekktir lagahöfundar sömdu falleg tangólög og má í þeim hópi nefna til dæmis Oddgeir Kristjánsson, Bjarna Böðvarsson, Friðrik Jónsson, Vilhelmínu Baldvinsdóttur og Tólfta september. Sum laganna njóta enn vinsælda í dag á meðan önnur eru gleymdari.
Tónleikarnir eru afrakstur rannsóknar Ástu Soffíu á íslenskri tangótónlist en til þess hlaut hún styrk úr menningarsjóði sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordal. Ása og Ásta deila ástríðu á þessum menningarverðmætum íslenskrar tónlistar og vilja nú leyfa þessum fallegu íslensku tangólögum að hljóma á norðurlandi.
Miðasala á LYST.is og við dyrnar.
Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði Rannís og Menningarsjóði KEA.

Miðar

The numbers below include tickets for this event already in your cart. Clicking "Get Tickets" will allow you to edit any existing attendee information as well as change ticket quantities.
Miðar are no longer available

Details

Date:
17. apríl
Time:
20:00 - 21:30
Cost:
3.500,0kr.
Event Category: