Lokað vegna viðhalds til og með 14 janúar.

Notaðu afsláttarkóðan

LYST

Skoða vefverslun
Loading Events

« Allir viðburðir

  • This event has passed.

VetrarhlaupaSERÍA LYST og UFA | #4

26. febrúar @ 17:30 - 19:00

Vertu með í VetrarhlaupaSERÍU LYST með UFA!
HLAUP #4 !
Langar þig að halda þér í formi í vetur og njóta þess að hlaupa með skemmtilegum hópi? Þá er VetrarhlaupaSERÍA LYST fullkomið tækifæri fyrir þig! Hlaupin henta öllum, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn.
Allir hlauparar byrja og enda á LYST í Lystigarðinum, þar sem heitt súkkulaði og ljúffeng fiskisúpa bíður þín eftir hvern hlaupatúr! Skemmtileg stemning í vetur, þar sem hver hlaupaleið er einstök.
Næstu hlaup:
– **26. febrúar**
– **26. mars**
Hlaupagjaldið er aðeins 1000 kr og hlaup eftir hlaup verður heitt súkkulaði fyrir alla og fiskisúpa í boði á 2.200 kr.
Komdu og njóttu hreyfingar og félagsskapar í vetur!
Allir eru velkomnir!
Skráning fer fram á staðnum

Hlaupaleið: Mæting á LYST í Lystigarðinum þar sem hlaupið er ræst til suðurs. Þið hlaupið suður út úr Lystigarði við SAK, beygið til hægri og hlaupið upp að Þórunnarstræti. Farið yfir gangbrautina á Þórunnarstræti, beygið til vinstri og hlaupið að og upp Mímisbraut, við Mýrarveg beygið þið til hægri og hlaupið út Mýrarveginn að Álfabyggð, við Álfabyggð beygið þið til hægri og haldið niður Álfabyggðina að Þórunnarstræti. Við Þórunnarstræti farið þið yfir gangbraut og inn á og MA-bílastæðið, hlaupið niður að og í gegnum Lystigarðinn og út um hann aftur við SAK þar sem þið beygið núna til vinstri, hlaupið niður bílastæðið við SAK áfram niður Eyrarlandsveg, meðfram Lystigarðinum, framhjá MA að Hrafnagilsstræti. Beygið þar til vinstri og farið upp Hrafnagilsstræti að Þórunnarstræti þar sem beygt er aftur til vinstri, hlaupið norður að bílastæði MA, beygið inn á bílastæðið og hlaupið inn í og í gegnum garðinn að LYST- kaffihúsi, þetta er 1 hringur.

HLAUPINU LÝKUR EFTIR 2 SVONA HRINGI.

Tveir hringir eru tæplega 6 km.

Details

Date:
26. febrúar
Time:
17:30 - 19:00
Event Category: