
- This event has passed.
Ritlistakvöld með Margréti S Höskuldsdóttur
18. mars @ 20:00 - 22:00

Fyrra ritlistakvöld Ungskálda verður miðvikudagskvöldið 18. mars á LYST í Lystigarðinum frá kl. 20-22.
Margrét S. Höskuldsdóttir hlaut á dögunum Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun, fyrir bókina Lokar augum blám sem kom út haustið 2025. Margrét hefur verið umkringd bókum frá barnæsku og hefur mikinn áhuga á bókmenntum og ljóðum. Það að skrifa skáldsögu spratt svo fram á síðustu árum og fyrsta skáldsagan, Dalurinn, leit dagsins ljós sumarið 2022. Önnur bók Margrétar, Í djúpinu, kom út árið 2024 og þýðingarétturinn hefur þegar verið seldur til Þýskalands.
Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og því að kostnaðarlausu. Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, kynnast skrifum annarra og jafnvel lesa upp sín eigin verk.
Veitingar í boði fyrir skráða gesti.
Skráning á linknum hér fyrir neðan: https://forms.gle/74GxmqMGK11Gy5X68
Skráning á linknum hér fyrir neðan: https://forms.gle/74GxmqMGK11Gy5X68
Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.
___________________________________
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.
