Lokað vegna viðhalds til og með 14 janúar.

Notaðu afsláttarkóðan

LYST

Skoða vefverslun

Loading Events

« Allir viðburðir

Ritlistakvöld með Ævari Þór Benediktssyni

2. október @ 20:00 - 22:00

Seinna ritlistakvöld Ungskálda verður miðvikudagskvöldið 2. október á LYST í Lystigarðinum frá kl. 20-22.

Að þessu sinni er leiðbeinandinn Ævar Þór Benediktsson sem er einn afkastamesti og vinsælasti höfundur landsins á sviði barna- og unglingabóka. Verk hans hafa hlotið fjölda verðlauna bæði á Íslandi og erlendis. Ævar er einnig lærður leikari og hefur hann leikið bæði á sviði og í sjónvarpsþáttum en einnig framleitt sitt eigið efni fyrir útvarp og sjónvarp. Frekari upplýsingar um Ævar og hans verk er að finna á heimasíðu hans www.aevarthor.com

Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og því að kostnaðarlausu. Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk.

Veitingar í boði fyrir skráða gesti.
Skráning HÉR

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.

Details

Date:
2. október
Time:
20:00 - 22:00