BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//LYST - ECPv6.15.20//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://lyst.is
X-WR-CALDESC:Events for LYST
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251031T180000
DTEND;TZID=UTC:20251101T230000
DTSTAMP:20260417T004350
CREATED:20250919T092145Z
LAST-MODIFIED:20250919T142739Z
UID:10000083-1761933600-1762038000@lyst.is
SUMMARY:SKÁL! Dinner POP - UP
DESCRIPTION:Skál!  verður með glæsilegt pop-up á LYST í Lystigarðinum dagana 31. október og 1. nóvember. Fullt af mat\, góð vín og bara gaman! \nBÓKA BORÐ \nUm SKÁL! \nSKÁL! opnaði í fyrsta mathöll Íslands\, Hlemmi Mathöll\, sem áður var aðalstrætóstoppistöð Reykjavíkur.Staðurinn var stofnaður af þremur vinum\, Gísla Mátt\, Birni Steini og Gísla Grímssyni\, sem deildu þeirri sýn að opna sanngjarnt vín- og veitingahús með bæði mat og drykki í hæsta gæðaflokki. \nSkál hefur verið valinn „besti andskotans veitingastaðurinn“ af Reykjavík Grapevine árin 2020\, 2022\, 2023 og 2024. Skál hlaut einnig Michelin Bib Gourmand viðurkenningu árið 2019. \nEftir 7 ár í Hlemmi Mathöll höfum við vaxið og þróast sem veitingastaður og nú höfum við flutt í nýtt húsnæði þar sem veitingastjórinn okkar\, Jon Sadler\, og yfirkokkurinn\, Thomas Lorentzen\, hafa gengið til liðs við okkur sem eigendur. \nKomdu við á okkar glænýja og fallega stað að Njálsgötu 1\, 101 Reykjavík. \nÍslenskar afurðir eru í forgrunni í eldhúsinu okkar og við nýtum þær á skapandi og ljúffengan hátt. Með matnum bjóðum við upp á náttúruleg vín\, íslenskt bjórúrval\, húseigin freyjte úr tei og handverkskokteila frá Kela barþjóni okkar.
URL:https://lyst.is/vidburdir/skal-dinner-pop-up/
CATEGORIES:Pop-up
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://lyst.is/wp-content/uploads/2025/09/1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251107T180000
DTEND;TZID=UTC:20251107T230000
DTSTAMP:20260417T004350
CREATED:20251104T093509Z
LAST-MODIFIED:20251104T093509Z
UID:10000088-1762538400-1762556400@lyst.is
SUMMARY:Jólabjór & pizzur
DESCRIPTION:🎄 Jólabjór & pizzur! 🍕🍺 \nHellingur af jólabjór í boði og pizzur frá @olifapizzeria – með smá LYST-kryddi að sjálfsögðu ✨ \nSmá jólalög (en ekki of mikið 😉) \nBara gaman\, eins og alltaf 🎅 \n👉 Föstudagur 7. nóvember kl. 18–23 \nBest að bóka borð á lyst.is
URL:https://lyst.is/vidburdir/jolabjor-pizzur/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://lyst.is/wp-content/uploads/2025/11/DC0AB11A-04A2-40FA-8291-635433028F46.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251108T200000
DTEND;TZID=UTC:20251108T223000
DTSTAMP:20260417T004350
CREATED:20251010T095107Z
LAST-MODIFIED:20251020T101223Z
UID:10000087-1762632000-1762641000@lyst.is
SUMMARY:KABARETT Silver Foxy
DESCRIPTION:Kabarett með öllu tilheyrandi! Silver Foxy er mætt aftur til að kynda upp í ykkur með sjóðheitri sýningu. Með henni er einvala lið skemmtikrafta sem syngja\, dansa\, fara í loftköstum og sprella út og suður. Einhverjar fatafellingar munu eiga sér stað og gott ef einhverjum brjóstadúskum verður ekki sveiflað. Mælt er með því að taka hláturtaugastyrkjandi fyrir sýninguna 🥳.\n \nAldurstakmark er 20 ár og sýningin hentar ekki holdfælnu fólki.
URL:https://lyst.is/vidburdir/kabarett-silver-foxy-2/
CATEGORIES:annað
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://lyst.is/wp-content/uploads/2025/10/IMG_0290.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251114T203000
DTEND;TZID=UTC:20251114T220000
DTSTAMP:20260417T004350
CREATED:20250917T132605Z
LAST-MODIFIED:20250917T132605Z
UID:10000084-1763152200-1763157600@lyst.is
SUMMARY:Axel Flóvent á LYST
DESCRIPTION:Hugguleg kvöldstund með Axel Flóvent\n\nAxel Flóvent nálgast sköpun líkt og lífið sjálft – með flæði\, opnun huga og í stöðugri þróun. Með ljóðrænum þjóðlagatón og tilfinningaríkri alt-pop nálgun fangar hann minningar og augnablik í lagi og texta.\nAxel hefur gefið út 2 breiðskífur\, nú síðast Away From This Dream (2024) sem var innblásin af 80s synthum\, trommuheilum og aukinni áherslu á lifandi slagverk\, píanó og rafgítar. Nú vinnur hann að nýju efni sem hann stefnir að gefa út snemma á næsta ári.\n\n14. nóvember næstkomandi ætlar Axel að halda lágstemmda tónleika á LYST þar sem hann frumflytur lög af næstu plötu\, ásamt gömlum lögum í huggulegum búningi.
URL:https://lyst.is/vidburdir/axel-flovent-a-lyst/
CATEGORIES:Tónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://lyst.is/wp-content/uploads/2025/09/Jz8nsPBg.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251126T173000
DTEND;TZID=UTC:20251126T190000
DTSTAMP:20260417T004350
CREATED:20251111T111737Z
LAST-MODIFIED:20251112T144806Z
UID:10000091-1764178200-1764183600@lyst.is
SUMMARY:🏃‍♀️❄️ Vetrarhlaupasería LYST með UFA! # 2❄️🏃‍♂️
DESCRIPTION:Komdu með í vetrarhlaup þar sem stemmingin er í fyrirrúmi – þetta er fyrir alla\, hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin eða vanur hlaupari! Við hittumst síðasta miðvikudag í mánuði kl. 17:30 við LYST í Lystigarðinum og tökum saman hlaup um Akureyri \nEftir hlaupið bíður þín heitt súkkulaði\, fiskisúpa & brauð og drykkir – allt FRÍTT í boði frábærra styrktaraðila 💪 \n📅 Næstu dagsetningar\n26. nóvember | 28. janúar | 25. febrúar | 25. mars\n💰 Þátttökugjald: 1.000 kr.\n📍 Við LYST í Lystigarðinum \nStyrktaraðilar: Orkusalan ⚡ | Fulfil | Powerade 💧 \nSkráning fer fram á staðnum \n——– \nHlaup #2\nMæting í Lystigarðinn við LYST þar sem hlaupið er ræst til norðurs\, þar hlaupið þið út úr garðinum um MA-bílaplan. Efst á MA-planinu er farið yfir Þórunnarstræti til suðurs og beygt fljótlega upp stíg að Álfabyggð. Hlaupið Álfabyggð að Mýrarvegi\, beygið til vinstri og hlaupið að og niður Mímisbraut að Þórunnastræti þar sem þið beygið til hægri og haldið áfram að Miðhúsabraut. Við Miðhúsabraut farið þið yfir gangbraut á Þórunnarstræti\, niður Lækjargötu að Aðalstræti\, beygið til hægri og hlaupið Aðalstræti að Naustafjöru. Við Naustafjöru farið þið yfir götuna\, snúið við og hlaupið stíginn við Aðalstræti (austan megin) til baka\, farið inn á Hafnarstræti og hlaupið það alla leið að kirkjutröppunum. Hlaupið upp kirkjutröppurnar\, áfram upp Eyrarlandsveg\, framhjá MA\, meðfram Lystigarðinum alla leið að suðurinngangi hans og haldið þar áfram að LYST þar sem hlaupinu lýkur. Leiðin er um 6 km.\n 
URL:https://lyst.is/vidburdir/vetrarhlaup2/
CATEGORIES:annað
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://lyst.is/wp-content/uploads/2025/11/web.webp
END:VEVENT
END:VCALENDAR