BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//LYST - ECPv6.15.20//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://lyst.is
X-WR-CALDESC:Events for LYST
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240530T200000
DTEND;TZID=UTC:20240530T210000
DTSTAMP:20260415T012741
CREATED:20240508T163633Z
LAST-MODIFIED:20240513T151825Z
UID:10000031-1717099200-1717102800@lyst.is
SUMMARY:Forhlustunarpartý Bigga Maus
DESCRIPTION:Forhlustunarpartý Bigga Maus \nBirgir Örn Steinarsson\, sem starfar undir listamanna nafninu Biggi Maus\, hefur ákveðið að fagna útgáfu væntanlegrar breiðskífu sinnar ‘Litli dauði/Stóri hvellur’ með því að bjóða fólki í for-hlustunarpartý á LYST. Það verður haldið þann 30. maí\, eða tæpri viku fyrir útgáfu sjálfrar plötunnar. \nBreiðskífan kemur svo út þann 5. júní næstkomandi á streymi-veitum sem og á vínyl. Hún er öll unnin í samstarfi við Togga Nolem (Þorgils Gíslason) sem gerði garðinn frægan með Skyttunum\, Kött Grá Pjé og þessa daganna í rokksveitinni Leður. Hér fylgja þeir eftir vinsældum laganna ‘Má ég snúza meir?’\, ‘Ekki vera að eyða mínum tíma’ sem komu út í fyrra sem og útgáfu þeirra af lagi Friðriks Dórs\,  ‘I don’t remember your name’\, sem kom út miðvikudaginn 15. maí. \n         Hljóðheimur þeirra er einhvers konar stökkbreyting á nýrómantík níunda áratugarins og má þar nefna sveitir á borð við Bauhaus\, Bara-flokkinn\, Blondie og Grafík sem áhrifavalda. \n         Platan er öll unnin á Akureyri þar sem Birgir býr nú og starfar sem listamaður og sálfræðingur. Ákveðið var að fara alla leið í tengingunni við höfuðstað Norðurlands og fengu þeir félagar leyfi til þess að hljóðrita stóran hluta plötunnar í sjálfu Davíðshúsi\, sem skáldið Davíð Stefánsson frá Fagraskógi gaf bænum að gjöf í erfðarskrá sinni. Allur söngur og píanóspil var því hjóðritað inn á vinnustofu Davíðs\, með eintak af sjálfri Guðbrandsbiblíu á flyglinum. \n         Eitthvað er um gesti á plötunni og má þar helst nefna Páll Ragnar Pálsson félaga Bigga úr Maus\, Valmar Valjaots úr Hvanndalsbræðrum og Rósu Ómars sem syngur í aukalagi á vínylútgáfunni. Einnig koma Mausararnir Eggert og Danni við sögu líka. \n         Birgir fagnar rúmlega 30 ára farsælum ferli í tónlistarbransanum en hann hefur m.a. náð gullplötu sölu ásamt hljómsveit sinni Maus og unnið íslensku tónlistarverðlaunin fyrir textagerð og sem hljómsveit ársins. Birgir vann einnig Eddu verðaunin árið 2014 fyrir handrit ársins (Vonarstræti) sem hann skrifaði ásamt Baldvini Z. Fjórum árum síðar gerðu þeir svo einnig saman handritið af Lof mér að falla. \nÚtgáfutónleikar fyrir plötuna verða svo haldnir í haust.
URL:https://lyst.is/vidburdir/for-hlustunarparty-biggi-maus-litli-daudi-stori-hvellur/
CATEGORIES:Tónleikar
END:VEVENT
END:VCALENDAR